Monday, November 08, 2004

Jæja, nú er rúm vika liðin síðan ég átti afmæli, og það bólar ekki enn á surprisinu hjá ykkur strákunum! Heheh - þið eruð greinilega að plotta eitthvað stórt. Ég er búinn að taka mér frí í vinnunni þessa vikuna til þess að verða viðbúinn, ég meina, við hljótum að fara eitthvað út á land og verða í nokkra daga fyrst að þetta er svona lengi í undirbúningi. Reyndar hélt ég að stundin væri runnin upp í gærkvöldi, þegar Hrólfur boðaði "skákpartý", en það reyndist vera rétt hjá honum. En ég verð vakandi fyrir öllu næstu dagana, þið eruð vísir til að sprella eitthvað mikið.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?