Friday, July 08, 2005
Kvikmyndagagnrýni II
War of the worlds
Steven Spielberg leikstj, aðalhlutverk: Tom Cruise, Dakota Fanning. 116 min., USA
Ljúfsárt fjölskyldudrama um fráskilda hafnarverkamanninn Ray Ferrier (Tom Cruise) sem reynir að sinna föðurhlutverkinu og vera góð fyrirmynd fyrir táningsson sinn Robbie (Harlan Ogilvy) og ungu dóttur sína Rachel (Dakota Fanning). Samband hans við þau hefur dalað eftir skilnað við eiginkonuna Mary Ann (Miranda Otto) sem hefur tekið saman við nýjan mann og flutt í fínt úthverfi í Boston. Robbie telur að Ray hafi hlaupist undan skyldum sínum sem fjölskyldufaðir, á meðan Rachel finnst faðir sinn vera fjarlægur, og hún leggur því allt sitt traust á Robbie, bróður sinn. Myndin fjallar einkum um ferðalag Ray og barnanna um austurhluta Bandaríkjanna þar sem þau hyggjast hitta móðurina, sem dvelst hjá foreldrum sínum. Saman kljást þau við ýmsar hættur og viðburði sem verða á vegi þeirra, svo sem fjölda marsbúa sem ferðast um á risastórum ósigrandi þrífótum með geislabyssur og hlífðarskjöld sem voru grafnir í jörðina fyrir milljón árum og eyða öllu lífi sem þeir finna og nærast á mannakjöti.
**** stjörnur af fimm mögulegum.