Friday, December 05, 2003

Takk fyrir þessa fræðslu á fótboltaheiminum Beeto. Þarna var heilmikið sem ég vissi ekki.
Ég aftur á móti veit að Eiður Smári og mr. Spice girl eru fótbolltakappar.
Síðan veit ég að fótbolltaaðdáendur eru svona.

Það sem ég veit um fótbolta:

1) Manchester City er ekki það sama og Manchester United
2) Leicester er borið fram "Lester"
3) Þýski boltinn er stífur og leiðinlegur
4) Ítalski boltinn er stífur og leiðinlegur
5) Enski boltinn er skemmtilegur
6) Championship Manager er ávanabindandi tölvuleikur...
7) Gummi heldur upp á Liverpool
8) Andri heldur upp á Manchester United
9) Hjalti heldur upp á ... Arsenal?
10) Hrólfur heldur upp á FC Jönköping
11) Ég held upp á uuu... Reading, og uppáhaldsleikmaður minn er Nicky Butt... og getiði af hverju.


Sem betur fer verður Jon Otsemoborororomomono með...

NNNNNEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIII. Hrikalegar fréttir!!!!

Liverpool attacking midfielder Harry Kewell will be out of action for up to three weeks with an ankle injury.

The 25-year-old, who has been in inspirational form of late, picked up the injury right at the end of Liverpool's Carling Cup defeat to Bolton Wanderers on Wednesday night.

The Australian star has netted three goals in his last five games - taking his tally for the season to seven following his £5million summer move from Leeds United.

With Michael Owen and Milan Baros already on the treatment table, boss Gerard Houllier is left short on options in attack. It means that Anthony Le Tallec could come in for tomorrow's lunchtime encounter with Newcastle United at St James Park.


Jesú a.k.a. Harry Kewell að tala við Guð.

Já, maður kemst strax í jólaskap bara um tilhugsunina um Christmas Macarena. Gummi skipar ákveðinn sess hjá mér bara fyrir hugrekkið að kaupa þennan disk handa mér...

Talandi um geisladiska... Nú er rétti tíminn til að fara að blása rykið að Christmas Macarena og PARTY ALL NIGHT!!! Yea Bitch

Ég er nú ekki alveg viss um að þessi kenning reynist rétt hjá þér. Til að mynda ef við tökum fyrir hin klassíska disk Whigfield eftir samnefndan höfund þá sjáum við jú að lagið Think of You er oddatala en lang besta lagið á plötunni, hið ódauðlega Saturday Night er tíunda lag disksins. Því bregðast krosstré sem önnur tré og slétttölulög geta stundum verið bestu lögin á plötum. Kanski er Whigfield bara undantekningin sem sannar regluna?

Oddatölur og geisladiskar

Ég hef stundað áralangar rannsóknir sem tónlistarunnandi og plötusnúður og komist að ákveðinni niðurstöðu, og veit að Þórður, tónlistarunnandi og Skífustarfsmaður, Hrólfur tónlistarunnandi og Gummi, sem á fjölbreyttasta CD safn á landinu, eru sammála mér: Bestu lögin á hverjum geisladisk er alltaf oddatala. Það er ófrávíkjanleg regla. Eruð þið ekki sammála strákar?
Prove me wrong...

Gott að sjá að fleiri eru farnir að slást í hópinn. Wilkommen Herr Gunther.

Þurfti aðeins að tjá mig um hann dr. Kovac. Ég held að þetta sé kórrétt ályktun hjá þér um að þetta sé ný markaðssetning á karakterinum en ég held að hún hafi byrjað þegar han drap einhvern árásarmann hér um árið. Muniði ekki eftir því? Þið munið kanski eftir öðrum svona breytingum á karakterum sem voru ekki til batnaðar. Hver man eki eftir því þegar Mark Green átti alltíeinu að vera hönk? Hahahahaha, það var ett það fyndnasta sem hefur komið í þessum þætti. Síðan þegar hann var paranoju sjúklingur og svo þegar hann varð ruddalegur eftir uppskurðinn. Þetta eru allt brilla múv í karakterþróun hins Græna. O, ég veit ekki hvort ég sakni hans eða Benton "Soulglow" meira.




Guten tag herr fernmeldelteknikeringenieur... uuu jah, die tun ist viel zu...

Guten Morgen Herr Supermansson. Nicht viel zu tun heh?


Dr. Kovac

Hvað er að gerast með Dr. Kovac í ER? Fyrst þegar hann kom inn í þættina átti hann greinilega að koma í staðinn fyrir Clooney - nema hvað að persóna Kovac var "of hönnuð" af markaðsfræðingum NBC. Hann var þessi fjallmyndarlegi og ofurgóði læknir, dularfullur maður með spenndandi fortíð, hafði misst fjölskyldu sína (til að fá samúð áhorfenda), talaði með hreim (virkar alltaf vel) og get this - bjó í bát niðri við höfn því hann var svo mikill ævintýramaður!!! Af hverju ekki bara láta hann líka vera tónlistamann á kvöldin, svona Julio Iglesias sem syngur fyrir munaðarlaus börn og svo væri hann líka frábær kokkur sem eldaði exótískan mat fyrir konurnar á deildinni?

Núna er hins vegar eitthvað að gerast með Kovac - hann er orðinn einhver remba með stæla við hjúkkurnar, átti í sambandi við latínóhjúkkuna sem endaði eitthvað illa, svaf hjá vændiskonu í þarsíðasta þætti, og nú síðast tók hann á móti 10.000 $ frá sjúklingi! Hvað er á seyði? Ég held að markaðsfræðingar NBC hafi ákveðið að gera hann að "hættulegu spennandi" týpunni til að höfða til annars hóps kvenkyns áhorfenda. Nú er hann svona, flotti en hættulegi strákurinn... nú þyrfti hann bara að lenda í smáslysi og fá ör í framan, og fara að spila í rokkhljómsveit og vera með amk 3ja daga skegg og fá sér aðeins ósnyrtilegri hárgreiðslu - og vera með kjaft við hina læknana.. þá væri umbreytingin fullkomnuð.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?