Friday, December 05, 2003

Dr. Kovac

Hvað er að gerast með Dr. Kovac í ER? Fyrst þegar hann kom inn í þættina átti hann greinilega að koma í staðinn fyrir Clooney - nema hvað að persóna Kovac var "of hönnuð" af markaðsfræðingum NBC. Hann var þessi fjallmyndarlegi og ofurgóði læknir, dularfullur maður með spenndandi fortíð, hafði misst fjölskyldu sína (til að fá samúð áhorfenda), talaði með hreim (virkar alltaf vel) og get this - bjó í bát niðri við höfn því hann var svo mikill ævintýramaður!!! Af hverju ekki bara láta hann líka vera tónlistamann á kvöldin, svona Julio Iglesias sem syngur fyrir munaðarlaus börn og svo væri hann líka frábær kokkur sem eldaði exótískan mat fyrir konurnar á deildinni?

Núna er hins vegar eitthvað að gerast með Kovac - hann er orðinn einhver remba með stæla við hjúkkurnar, átti í sambandi við latínóhjúkkuna sem endaði eitthvað illa, svaf hjá vændiskonu í þarsíðasta þætti, og nú síðast tók hann á móti 10.000 $ frá sjúklingi! Hvað er á seyði? Ég held að markaðsfræðingar NBC hafi ákveðið að gera hann að "hættulegu spennandi" týpunni til að höfða til annars hóps kvenkyns áhorfenda. Nú er hann svona, flotti en hættulegi strákurinn... nú þyrfti hann bara að lenda í smáslysi og fá ör í framan, og fara að spila í rokkhljómsveit og vera með amk 3ja daga skegg og fá sér aðeins ósnyrtilegri hárgreiðslu - og vera með kjaft við hina læknana.. þá væri umbreytingin fullkomnuð.

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?