Monday, December 22, 2003

Þú heldur að sjálfsögðu með Liverpool Bragi. Og af hverju? Nú, af því að helstu áhrifavaldar tónlistarsögunnar eru frá Liverpool, þ.e.a.s The Beatles og Atomic Kitten.

Tilboð óskast!

Tilboð óskast í­ stuðningsmann í­ enska boltanum.
Ég hef verið frekar hlutlaus þegar kemur að enska boltanum, en nú er svo komið að ég mun brátt fara að mynda skoðun og halda með ákveðnu liði. Þessi lið koma til greina:

1) Manchester United.
Staða: Efst í­ úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Andri.
Kostir: Nicky Butt leikur með liðinu.
Af hverju? Nafnið segir allt...

2) Liverpool.
Staða: Nr. 2 í­ úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Gummi og Hrólfur.
Kostir: Helga á Liverpool trefil sem Gummi gaf henni...

3) Arsenal.
Staða: Nr. 9 í úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Hjalti og nokkrir strákar í­ vinnunni.
Kostir: Ray Parlour.
Af hverju? Hvernig er hægt að standast þetta bros og þetta übergay nafn?

Ég mun taka á móti tilboðum frá og með deginum í­ dag. Hæstbjóðandi hlýtur eilí­fan stuðning minn með viðeigandi liði og ýmis konar áróður og smölun.


Risk!!!

BREAKING FOKKING NEWS STRÁKAR

Halló - afboðið öll jólaboð. Hættið við að kaup fleiri jólagjafir. Dragið fram kókið og snakkið. Setjist niður og verið reiðubúnir að svíkja hvorn annan... það er kominn tími að kíkja á dálítið sem "brings friends together ... to kill each other..."



Sá sem útvegar þetta spil verður hetja okkar allra næstu árin...

Síðan er þetta risk líka flott...

aahhh. gott að mæta ferskur í vinnuna kl. 8:00 eftir 15 min. göngutúr með vasadiskóið í botni og hlusta á Zombie spila BRING THA NOISE MEÐ FOKKING PUBLIC ENEMY OG ANTHRAX.... þá verður maður svo sallarólegur að renna yfir tölvupóstinn í vinnunni...

Idol

Tekið af huga.is:

Um Helga Rafn:

"Sko ég hata Íslensku þjóðina fyrir að hafa kosið HELGA RAFN (súperfallega) út!!! það er eikkað að fólki!!!!"

"Ég fékk kökk í hálsin þegar hann fór ég elskaði hann út af lífinu!!!!"

"greinilegt að gelgjurnar voru búnar að eyða öllum peningnum í jólagjafir og áttu ekki inneign."

Um jólasveinakommentið hjá Önnu:

"Anna Katrín á bara að passa sig á hvað hún segir þegar hún er að tala við Stöð2 (sem og aðra miðla), hún hlýtur að vita af því að það er fullt af krökkum yngri en 10 ára sem trúa/trúðu á jóla og eru að horfa á þáttinn og líka að þessi ummæli hennar mundu birtast í þættinum. "

"já, ég var að horfa á Idol með systurdóttur minni sem er 5 ára og eftir að Anna Katrín sagði þetta um jólasveininn fékk ég spurninguna "afhverju gaf amma hennar henni í skóinn, hver gefur mér í skóinn" og eftir langar umræður sættist sú litla að jólasveinninn væri víst til."

This page is powered by Blogger. Isn't yours?