Monday, December 22, 2003

Tilboð óskast!

Tilboð óskast í­ stuðningsmann í­ enska boltanum.
Ég hef verið frekar hlutlaus þegar kemur að enska boltanum, en nú er svo komið að ég mun brátt fara að mynda skoðun og halda með ákveðnu liði. Þessi lið koma til greina:

1) Manchester United.
Staða: Efst í­ úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Andri.
Kostir: Nicky Butt leikur með liðinu.
Af hverju? Nafnið segir allt...

2) Liverpool.
Staða: Nr. 2 í­ úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Gummi og Hrólfur.
Kostir: Helga á Liverpool trefil sem Gummi gaf henni...

3) Arsenal.
Staða: Nr. 9 í úrvalsdeildinni.
Fylgismenn: Hjalti og nokkrir strákar í­ vinnunni.
Kostir: Ray Parlour.
Af hverju? Hvernig er hægt að standast þetta bros og þetta übergay nafn?

Ég mun taka á móti tilboðum frá og með deginum í­ dag. Hæstbjóðandi hlýtur eilí­fan stuðning minn með viðeigandi liði og ýmis konar áróður og smölun.


Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?