Monday, December 15, 2003

HEY HEY, VARÚÐ!! [TÖFRAR] Í GANGI Á ÞESSUM VEF. BYRJUM Á AÐ [FAGNA] BEETHO SUPERMANSSON!! [UPP] MEÐ BEETHO [UPP] MEÐ BEETHO

Já, Blogg er lýsandi dæmi um hnignun siðmenningarinnar eins og við þekkjum hana.

Mér finnst að Íslendingar ættu að taka upp bloggarabrennur í svipuðum dúr og gömlu góðu nornabrennurnar. Best að nefna þetta við Dabba kóng.

PS - Blogg er æðislegt, og þið eruð allir rosalega flottir [innskot admin hehehehe...]

já, hrólfur er búinn að fá verðlaun fyrir öflugasta bloggara vikunnar. til hamingj hrólfur

Hýbýli Hussains

Á mbl.is er lýsing á hýbýlum Hussains. Dálítið spes:

Inni í kofanum var óhreinn þvottur og einnig annar fatnaður, þar á meðal síður Darth Maul kufl og tveir nýir hvítir Eminem bolir. Tvö rúm eru í kofanum og virtist annað ekki hafa verið notað. Á hinu rúminu var teppi með blómamynstri og á veggnum ofan við rúmið var plakat af Chelse Clinton. Á gólfinu voru svartir "Air Jordan" skór og inniskór með gulllitaðri sylgju. Einnig voru nokkrar gamlar bækur á gólfinu eftir Michael Moore og geisladiskur með hljómsveitinni Albert. Í eldhúsinu var lítill ísskápur með nokkrum Bounty súkkulaðistykkjum, pylsupakki, rjúpur, McDonalds hamborgarar, og dós af 7-up. Á borði var gamall brauðhleifur, úlfaldasteik, innbakað grænmeti, maís, brúnaðar kartöflur, köld hrísgrjón í potti, örbylgjupopp og óhreint leirtau í vaskinum. Á hillu yfir gaseldavélinni var sápa, kaffidós, flaska með munnskoli, spegill, PlayStation 2 leikjatölva og tvö Mars súkkulaðistykki.

Jón Arnór Stefánsson = auðveldasta starfið í NBA
Á www.espn.com er farið yfir auðveldustu störfin í NBA:

Devean George. Sorry ... but being the Fifth Beatle with Shaq, Kobe, Gary and Karl doesn't look too taxing from afar. It's even better than being unknown Dallas rookie Jon Steffansson, the Icelander who ranks as the luckiest guy on any NBA roster. Difference is, George gets to play. And maybe win another ring.

Já,hvað fær Jón margar milljónir á viku? Fyrir að sitja á bekknum og mæta á æfingar? Og spila Playstation?

Flashback...
Núna er Ninja Teenage Mutant Hero Turtles komið aftur. Pæliði í því! Þetta var vinsælt hvað, 1988-1991? Ætli að þeir setji myndirnar þá aftur á markað? Þær hafa eflaust elst vel, sérstaklega þar sem Vanilla Ice lék í mynd nr. II (ég fór á hana í bíó með vinnunni sumarið 1991). Munið þið ekki eftier þessu? "Go ninja, go ninja go!"Ætli hann verði deletaður út? Og kannski einhver annar settur í staðinn. Uppástungur enívonn? Clay Aiken? Peter Andre? Það er náttúrulega erfitt að replace Vanilla, sérstaklega þar sem hann á flottustu setninguna í kvikmyndasögunni í myndinni Cool as Ice þar sem hann "lék" á móti Naomi Campell: "Drop the zero and get with the hero". Sá hana með Þórði á sínum tíma - við skemmtum okkur bara vel yfir henni... Ég skal viðurkenna að ég á Vanilla Ice Extremely live CD, sem ég keypti sjálfur!! En hann er hvergi nærri eins góður og David Hasselhoff diskarnir mínir (ath - fleirtala)!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?