Monday, December 15, 2003

Flashback...
Núna er Ninja Teenage Mutant Hero Turtles komið aftur. Pæliði í því! Þetta var vinsælt hvað, 1988-1991? Ætli að þeir setji myndirnar þá aftur á markað? Þær hafa eflaust elst vel, sérstaklega þar sem Vanilla Ice lék í mynd nr. II (ég fór á hana í bíó með vinnunni sumarið 1991). Munið þið ekki eftier þessu? "Go ninja, go ninja go!"Ætli hann verði deletaður út? Og kannski einhver annar settur í staðinn. Uppástungur enívonn? Clay Aiken? Peter Andre? Það er náttúrulega erfitt að replace Vanilla, sérstaklega þar sem hann á flottustu setninguna í kvikmyndasögunni í myndinni Cool as Ice þar sem hann "lék" á móti Naomi Campell: "Drop the zero and get with the hero". Sá hana með Þórði á sínum tíma - við skemmtum okkur bara vel yfir henni... Ég skal viðurkenna að ég á Vanilla Ice Extremely live CD, sem ég keypti sjálfur!! En hann er hvergi nærri eins góður og David Hasselhoff diskarnir mínir (ath - fleirtala)!

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?