Monday, March 03, 2008

Síðdegisútvarp Bylgjunnar
Dr. Gunni vísar í ónanfgreindan bloggara á síðunni sinni. Þar fjallar hann m.a. um síðdegisútvarp Bygjunnar. Mikið er ég sammála hönum:

"Þetta [síðdegisútvarp Bylgjunnar] hlýtur að vera mest óspennandi útvarpsefni síðan 'Straujað í Beinni'. Djöfulsins tuð og ó-samræður. Þessir durgar eru bara að væflast á netinu og lesa það sem þeir sjá. - "Heyrðu það var maður í Wisconsin sem var soldið óheppinn. Hann var rekinn úr vinnunni og kom heim að hundinum sínum vera að ríða konunni sinni." -"Já, ekki hans dagur," Svarar hinn bjáninn. "En opnum nú fyrir símann og leyfum hlustendum að kvarta yfir umferðinni." Alveg glæsilegt.

Hérna er það sem bar hæst í þættinum í gær:Kynningarstef: "Niðurgangur í Gmoll" eftir Bay City Rollers."Komið þið öll sæl og blessuð. Reykjavík síðdegis hér með ykkur til hálf sjö í kvöld. Munið nú að keyra varlega. Hér rétt á eftir ætlum við að lesa veðurfréttir, lesa sjónvarpsdagskrána, lesa furðufréttir af netinu, lesa hvað gerðist á þessum degi af netinu og heyra í fullt, fullt af hlustendum. En fyrst er það Bubbi."Lag og auglýsingar.

"Heyrðu, á þessum degi fyrir 35 árum kom örbylgjuofninn fyrst á markað""Já, örbylgjuofninn?""Hinn eini sanni""Hann er þarfaþing, örbylgjuofninn""Já""Það má poppa í honum""Já og hita mat""Það er mikilvægt að borða mat""Já og ekki spillir fyrir að hafa hann heitann""Já, þá kemur örbylgjuofninn sterkur inn. Hann er 35 ára, örbylgjuofninn""Heyrðu það var fleira sem gerðist á þessum degi, því á þessum degi árið 1953 gifti Henry Kissinger sig í annað sinn"

Þetta heldur áfram í dágóða stund."Heyrum nú hvað gekk á í gær"(upptaka af "hápunktum" þáttarins í gær).

Lag og auglýsingar."Jæja nú ætlum við að opna fyrir símann og heyra í hlustendum. Klukkan er að verða sex og eflaust hefur mikið verið rætt á kaffistofum landsins. Gefum hlustendum hljóðið."Staða handboltans rædd. Síðan furðufrétt. Það liggur við að það heyrist í músahnöppunum meðan þeir halla sér aftur í stólunum og vafra á netinu. "Seinasti geirfuglinn var skotinn á þessum degi" -"Heyrðu, Tom Hanks á afmæli" -"Hér á minni tölvu hef ég fundið furðufrétt um lottóvinningshafa sem hefur ekki farið í bað í tvö ár"."Heyrum í hlustendum"

Ræktin
Bubbi fer ekki í sturtu áður en hann fer í gufuklefann.

BYKO
Gelgjustrákurinn sem afgreiddi mig í BYKO í gær smjattaði á Snickers á meðan hann afgreiddi mig. Gaman að því.

Aspen Extreme
Á árunum ca. 1993-1994 vildi Gummi ávallt leigja Aspen Extreme þegar við fórum út á videoleigu, enda er hann alkunnur skíðakappi. Þessi stórmynd var í sjónvarpinu á laugardagskvöldið, og ég horfði á hana með öðru auganu - ég er viss um að Gummi hafi líka horft á hana. Ég bjóst við gelgjumynd með skíðaatriðum, en nei - þetta var svaka mellódrama, sbr. söguþráðinn: "J. and his friend Dexter quit their jobs in Detroit to become ski-instructors in Aspen. While T.J. advances to the most popular instructor of the school during the season, he has to take care for Dexter, who's future is less bright and who's eventually thinking about jobbing as drug courier - bringing their friendship to a test. Meanwhile the rich business woman Brice supports T.J. in his writing ambitions and invites him to live at her home. But in her absence he falls in love with the stunningly beautiful blond radio moderator Robin. "

Ég vona að Ski school verði næsta laugardagskvöld!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?