Monday, March 03, 2008
Síðdegisútvarp Bylgjunnar
Dr. Gunni vísar í ónanfgreindan bloggara á síðunni sinni. Þar fjallar hann m.a. um síðdegisútvarp Bygjunnar. Mikið er ég sammála hönum:
"Þetta [síðdegisútvarp Bylgjunnar] hlýtur að vera mest óspennandi útvarpsefni síðan 'Straujað í Beinni'. Djöfulsins tuð og ó-samræður. Þessir durgar eru bara að væflast á netinu og lesa það sem þeir sjá. - "Heyrðu það var maður í Wisconsin sem var soldið óheppinn. Hann var rekinn úr vinnunni og kom heim að hundinum sínum vera að ríða konunni sinni." -"Já, ekki hans dagur," Svarar hinn bjáninn. "En opnum nú fyrir símann og leyfum hlustendum að kvarta yfir umferðinni." Alveg glæsilegt.
Hérna er það sem bar hæst í þættinum í gær:Kynningarstef: "Niðurgangur í Gmoll" eftir Bay City Rollers."Komið þið öll sæl og blessuð. Reykjavík síðdegis hér með ykkur til hálf sjö í kvöld. Munið nú að keyra varlega. Hér rétt á eftir ætlum við að lesa veðurfréttir, lesa sjónvarpsdagskrána, lesa furðufréttir af netinu, lesa hvað gerðist á þessum degi af netinu og heyra í fullt, fullt af hlustendum. En fyrst er það Bubbi."Lag og auglýsingar.
"Heyrðu, á þessum degi fyrir 35 árum kom örbylgjuofninn fyrst á markað""Já, örbylgjuofninn?""Hinn eini sanni""Hann er þarfaþing, örbylgjuofninn""Já""Það má poppa í honum""Já og hita mat""Það er mikilvægt að borða mat""Já og ekki spillir fyrir að hafa hann heitann""Já, þá kemur örbylgjuofninn sterkur inn. Hann er 35 ára, örbylgjuofninn""Heyrðu það var fleira sem gerðist á þessum degi, því á þessum degi árið 1953 gifti Henry Kissinger sig í annað sinn"
Þetta heldur áfram í dágóða stund."Heyrum nú hvað gekk á í gær"(upptaka af "hápunktum" þáttarins í gær).
Lag og auglýsingar."Jæja nú ætlum við að opna fyrir símann og heyra í hlustendum. Klukkan er að verða sex og eflaust hefur mikið verið rætt á kaffistofum landsins. Gefum hlustendum hljóðið."Staða handboltans rædd. Síðan furðufrétt. Það liggur við að það heyrist í músahnöppunum meðan þeir halla sér aftur í stólunum og vafra á netinu. "Seinasti geirfuglinn var skotinn á þessum degi" -"Heyrðu, Tom Hanks á afmæli" -"Hér á minni tölvu hef ég fundið furðufrétt um lottóvinningshafa sem hefur ekki farið í bað í tvö ár"."Heyrum í hlustendum"