Monday, December 15, 2003

Hýbýli Hussains

Á mbl.is er lýsing á hýbýlum Hussains. Dálítið spes:

Inni í kofanum var óhreinn þvottur og einnig annar fatnaður, þar á meðal síður Darth Maul kufl og tveir nýir hvítir Eminem bolir. Tvö rúm eru í kofanum og virtist annað ekki hafa verið notað. Á hinu rúminu var teppi með blómamynstri og á veggnum ofan við rúmið var plakat af Chelse Clinton. Á gólfinu voru svartir "Air Jordan" skór og inniskór með gulllitaðri sylgju. Einnig voru nokkrar gamlar bækur á gólfinu eftir Michael Moore og geisladiskur með hljómsveitinni Albert. Í eldhúsinu var lítill ísskápur með nokkrum Bounty súkkulaðistykkjum, pylsupakki, rjúpur, McDonalds hamborgarar, og dós af 7-up. Á borði var gamall brauðhleifur, úlfaldasteik, innbakað grænmeti, maís, brúnaðar kartöflur, köld hrísgrjón í potti, örbylgjupopp og óhreint leirtau í vaskinum. Á hillu yfir gaseldavélinni var sápa, kaffidós, flaska með munnskoli, spegill, PlayStation 2 leikjatölva og tvö Mars súkkulaðistykki.

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?