Monday, December 08, 2003

Hárgreiðslustofur

Það eru til ýmsar leiðir til að láta klippa sig, en því fylgja allskonar social-economic-status pælingar.
Status röðin er svona (frá best til verst):

A Hárgreiðslustofur í miðbænum
B Hárgreiðslustofur við verslunargötur
C Hárgreiðslustofur í litlum verslunarmiðstöðvum í úthverfum
D Hárgreiðslustofur í bílskúrum o.sv.l.
E Klipping heima hjá manni

Ég hef notað mestallan skalann. Ég fór td. til Villa Þórs í Ármúla þegar ég var lítill (Flokkur B), en þegar táningsaldurinn kom, fór ég á Rakarastofu Gríms í Grímsbæ (Flokkur C). Svo fór ég á flottar stofur á borð við Mojo og Jóa og félaga, þar sem er openly-gay staff, spiluð tónlist á borð við Air og St. Germain, manni boðið upp á kaffi og höfuðnudd... og alveg rándýrt (Flokkur A). Síðan komst ég að því að ég gat fengið nákvæmlega eins klippingu heima hjá mér (Flokkur E). En svo kom að því að heimaklipparanum fannst þetta ekkert sérstaklega skemmtilegt og dálítið tímafrekt, svo að ég er kominn á hárgreiðslustofu, með hryllilegu nafni, PERMA. Hún er á Eiðistorgi og er með svona early 80´s innréttingum, semsagt Flokkur C. Ætli ég verði ekki í þeim flokki þangað til að heimastofan opni aftur, eða þangað til ég tími að eyða hellingspening í flottu hárgreiðslustofurnar í flokki A...

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?