Monday, December 08, 2003

Jólalög
Hvernig stendur á því að það eru gerð svona mörg krappí jólalög á Íslandi? Ég meina það eru tekin erlend jólalög, og þeim snarað á íslensku, svo eru tekin erlend lög - þurfa ekki endilega að vera jólalög, (t.d. man ég eftir lagi með Cat Stevens sem var alltíeinu orðið að íslensku jólalagi) og svo loks eru frumsamin íslensk jólalög sem er það mesta krapp sem maður veit um... Það liggur við að hvaða band sem er (les - miðaldra kall með skemmtara í bílskúrnum sem finnst gaman að syngja með frænda sínum) geti gert jólalög, og fengið það í spilun í útvarpi!!! Hvaða rugl er það? Svo eru flest poppböndin farin að gera jólalög líka. Getur verið að eina ástæðan sé sú að öll jólalög eru ofspiluð í 2 mánuði m.a. á sérstakri jólaútvarpsstöð, og að böndin fái STEF gjöld út á þau? Hvað segir Skífustarfsmaðurinn?

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?