Tuesday, December 16, 2003

Oprah Winfrey
Frá því í september höfum við keypt Stöð 2, enda slatti af ágætu efni þar. Á morgnana er Oprah Winfrey, sem er endursýnt um helgar. Ég hef séð þættina hennar annað slagið, og séð margt áhugavert, þám, viðtal við Tracy Lords, sértrúarsöfnuði, fróðleik um Rainbow Party og margt fleira. Hins vegar var þátturinn á sunnudaginn slæmur. Mjög slæmur. Barbara Streisand mætti, og söng eitt lag. Hún er nánast hætt að koma opinberlega fram og þess vegna var það mikið mál að hún ætlaði að syngja í þættinum. Aðdáendur voru æstir, og rætt var við einn gest, sem hafði skírt dóttur sína í höfuðið á Streisand. Loks tók hún lagið. Lagið fjallaði um hundinn hennar. Hann dó fyrir stuttu. Henni þótti mjög vænt um hann. Á meðan hún söng kom mynd af honum á stóran sjónvarpsskjá fyrir aftan hana. Þetta var hvítur Poodle hundur með bleika slaufu og með hárgreiðslu. Oj bara. Skemmtilegt fyrir aðdáendur að sjá iconið sitt syngja um hundinn sinn!!! Ég er hættur að horfa á Opruh. Nema þegar Beonce Knowles mætir. Eða þegar fjallað er um skrítið fólk. Eða þegar Beonce Knowles mætir...

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?