Friday, February 27, 2004
Hmmm... við nánari umhugsun verður mér ljóst að Bónussagan mín er allsekki af sama meiði og þín. Allekki í sama gæðaflokki.
Tilraun tvö til frásagnar:
Um daginn var ég á gatnamótum að reyna að beygja af kringlumýrarbrautinni án þess að það væru beygjuljós. Þá sá ég að á móti mér var miðaldra maður sem var að reyna að beygja bíl sínum í öfuga átt við mig. Hann var kominn vel út á götuna en bílarnir úr minni átt voru í stríðum straumi þannig að hann varð að bíða eftir að ljósin breyttust og smeigja sér yfir á gula/rauða ljósinu. Umferðin var einnig þung í minni átt og ég komst ekki yfir í þetta skipti. Þá sá ég að miðaldra maðurinn hafði ekki heldur komist yfir og löngu orðið rautt á hann. Hann var því strandaður á miðri götu með bíl beint fyrir aftan sig og traffíkina sveigjandi fram hjá sér í báðar áttir. Ég vorkenndi honum og huxaði að Íslendingar kynnu ekki að haga sér í umferð. Er lífið ekki merkilegt?
Er ekki frá því að þarna hafi mér tekist betur upp en samt ekki fullkomlega. Bragi, þú átt enn vinninginn.