Friday, February 27, 2004

Uss barasta, ég er hneikslaður Bragi. Þú spyrð Hrólf hvort hann geti reddað gráa albúminu. Éssskal barasta segja þér það að ég er þegar búinn að dánlóda því, brenna það og fá leið á því.

Annars verð ég að hrósa þér fyrir að hafa opnað hjarta þitt hér á síðunni og gefið okkur innsýn inn í líf þitt og traumatíska reynslu af Bónusferðum. Ég er hrærður.

Hér er ein lítil Bónussaga frá mér: Eitt sinn þegar ég var í Bónus þá voru til rauðar paprikur sem voru ekki hálfmyglaðar eða vanskapaðar. Það var mesti gleðidagur lífs míns. Ég vonast til þess að finna einhvern tíma aftur rauða papriku í Bónus sem er ekki hálfmygluð eða vansköpuð.

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?