Tuesday, April 27, 2004
Eigum við ekki að skella okkur á þetta?
Föstudagsmálstofan í málfræðinni er enn í fullu fjöri og verður það væntanlega út maí. Næsta föstudag (30. apríl) er komið að Aleksander Wereszczynski, M.A.-nema í íslenskri málfræði, en hann heldur fyrirlestur um aðblástur, eðli hans og uppruna. Fyrirlesturinn hefst klukkan 11.15 og er í stofu 301 í Nýja-Garði. Lýsing Alexanders á erindinu fylgir hér að neðan.
"BLÁSTUR OG EÐLI HANS"
Ég ætla að velta fyrir mér spurningunni hvað aðblástur er og hver er
uppruni hans. Fyrst mun ég skoða hvernig h-hljóðið verður til í tungumálum
heims og hvaða fyrirbæri svonefnd löng lokhljóð (geminantar) eru
eiginlega. Ég mun skoða aðblásturskerfi í andalúsísku (los perros >
lohperroh), yúgúrísku (*köp > köhp), halkísku (thaht), fornmongólísku
(thahta) og 'aspiration flip-flop' í mongúorísku. Á eftir ætla ég að
greina aðblástur í nútímaíslensku og svara spurningunni hvort hann sé á
einhvern hátt tengdur fráblæstri eða afröddun. Ég mun einnig skoða hvort öll
þessi blásturskerfi séu af sama uppruna og hvort þau séu sama fyrirbæri eða
ekki. Að lokum mun ég íhuga hvort rétt sé að tala um Sprachbund í Norður-
Evrópu varðandi aðblástur eða blástur almennt.