Monday, September 20, 2004

Kókoskúlur
Sumir segja að kókoskúlur og kókómjólk séu bara fyrir lítil börn. Fullorðið fólk fær sér kaffi latte í teikavei bolla og eitthvað franskt crou´son sjitt.
Jæja, ég drekk ekki kaffi og er hrifinn af kókoskúlum, þótt sumir segi að þær séu búnar til úr afgöngum af gólfinu hjá bakaranum. Ja - þetta er eins og með pulsur, ég vil ekki vita hvernig þær eru búnar til, en ég veit að mér finnst þær góðar. Bakaríin hér í kring eru með hrikalega slæmar kókoskúlur, svo slæmar að maður setur upp "ætliði-virkilega-að-selja-þetta-ógeð" svip á andlitið þegar maður sér þær í borðinu. Og ekki minnkar svipurinn ef maður tekur sénsinn og smakkar þær. Ég komst að því nýlega að bakaríið sem er hjá ísbúðinni í vesturbænum er með mjög góðar kókoskúlur. Sem kom mér nokkuð á óvart, því þetta er eitthvað el-cheepo bakarí með early-eitís innréttingu, lífsleiðri starfstúlku (geddéahhstodah?) attítjúdi og gömlu bakkelsi. Ég kom einhverntíma þangað og spurði hvað væri bakað í dag í borðinu hjá henni, og það kom svona löng þögn - síðan benti hún mér á eitthvað deigsjitt í einu horninu. Búið!

En semsagt - góðar kókoskúlur þarna, allt annað vont.

Á morgun - ekki missa af : Úttekt á bestu 10-11 búðunum í vesturbænum. Da-da-DA!

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?