Wednesday, September 29, 2004

Vegna fjölda áskoranna - BENSÍNSTÖÐVAR Í VESTURBÆNUM



Í vesturbænum eru nokkrar bensínstöðvar. Hjá Bókhlöðunni er Shell stöð. Þar hef ég mjög oft fengið mér pulsu í kvöldmatinn þegar ég hef verið áfram að vinna uppi í bókhlöðu. Yfirleitt fæ ég mér ostapulsu í brauði með kartöflusalati og steiktum/hráum lauk + tómatsósa og sinnep. Þetta er eitthvað tilboðsdót. En ég er kominn með nóg af slíku dóti. Ekki meiri pulsur fyrir mig takk. Samlokurnar hjá þeim eru ok, ágætt úrval, en eins og í öllum búðum, þá eru elstu samlokurnar settar fremst. Bastards! Þarna virðist vera stuðfólk að vinna, oft mikið grín og glens.



Síðan er ESSO stöð á Nesvegi, en þar er líka dekkjaverkstæði. Þar fór ég einhverntíma að láta setja vetrardekkin á. Við afgreiðsluborðið var feitur og fúlskeggjaður kall með sítt hár og að lesa Hustler. Gaman gaman.



Við Hagkaup á Eiðistorgi er ÓB-stöð. Þar fann ég einusinni debetkort.



Næst: Apótek í Vesturbænum!!!

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?