Monday, October 04, 2004

Apótek í Vesturbænum
Það eru þrjú apótek í Vesturbænum. Eitt rétt hjá Vesturbæjarlauginni, svona 50´s apótek með flottu gólfi í innganginum (svona steinamyndaflísathingy) og dökkhærðri afgreiðslu stúlku, sem ég held að viti of mikið um heilsufar mitt, því alltaf þegar ég hef farið í apótekið, hefur hún afgreitt mig. Skemmtilegt. Hitti hana kannski á djamminu (þegar ég fer næst - ca. 2015) og þá segir hún "heyyy - varst þú ekki strákurinn sem var alltaf að kaupa Coloncleanser?" eða eitthvað. (Ég tek Coloncleanser sem dæmi út í loftið. Ég nota ekki svoleiðis. En... jæja, ég er kominn út á hálan ís. OK. Ég kaupi bara raksápu þarna. Búið.)



Síðan er lyf og heilsa í JL húsinu sem opnaði þarna fyrir nokkrum árum, þar sem var áður sjoppa með afskaplega passívum afgreiðslumanni. Þar er dökkhærð afgreiðslustúlka líka að vinna, sem minnir dálítið á Yasmine Bleeth (eða hvernig í andsk. sem maður á að skrifa það) en samt ekki. Jæja, þetta er svona vonda bigcorporation apótekið, sem opnaði við hliðina á litla sæta hverfisapótekinu, sem er búið að vera þarna í 50 ár eða eitthvað og ætlar að reka það í gjaldþrot. Lyf og heilsa er stillt inn á sama markhóp og Bylgjan/Létt 96.7/Vikan/Fólk með Sirrý/JóiFel/Femin hefur gert - sem er konur á milli ca. 30-40 í viðskiptalífinu í Burberries og hlustar á danspartí Bylgjunnar á laugardagskvöldum, ekki það að það sé eitthvað athugavert við það. Þar er alltaf tilboð á Dermacreme, svona einhverju unaðskremi með stóru plakati af konu sem virðist vera úrvinda af bólförum.



Litla, sæta apótekið er svo við hliðina á Lyf og heilsu. Það heitir held ég Vesturbæjarapótekið og er svona, hverfisdæmið. Þangað fara rónarnir til að fá sér kardemommudropa.

NÆST: Uuuu.... sjoppur í Vesturbænum (I´m running out of ideas).

Er að vinna í commentadæminu,
bræji

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?