Wednesday, October 27, 2004



Derhúfur?

Nú er maður kominn á fullt í ræktinni. Í morgun varð ég var við trend í ræktinni, en þar sá ég amk 3 kalla með derhúfur að pumpa. Hvað er þetta með derhúfurnar í ræktinni? Hvaða tíska er það eiginlega? Ég held að eftir því sem maður fer meir og meir í líkamsræktarheiminn, þá fer maður smátt og smátt að klæða sig samkvæmt því, og verður nánast alltaf í íþróttaskóm og joggingalla - og með derhúfu, og hlustar á ömurlega dans/teknóútgáfu af Bítlunum: DÚNKA-DÚNKA-DÚNKA-DÚNK "Yesterday...all my troubles seemed so far away" DÚNKA-DÚNKA-DÚNKA "Now it seems they´re here to stay..." DÚNKA-DÚNKA-DÚNKA-DÚNK o.sv.frv...

Ef þið sjáið mig í einhverri líkamsræktarstöð með derhúfu, og í ljótum íþróttaskóm eftir rækt, þá megið þið láta mig vita takk.
Sérstaklega ef ég ætla að setja nýjasta eróbikk-rímixið af Olsen bræðrunum í græjurnar... (og já - það ER til...)

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?