Monday, October 04, 2004

Go Þórður!

Hádegisfyrirlestur á vegum RIKK fimmtudaginn 7. október í stofu 101 í Odda kl. 12:15-13:15.

Þórður Kristinsson mannfræðingur flytur erindið "Karlmannleg ímynd hjúkrunar".
Karlar eru rétt rúmlega 1% starfandi hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um upplifun karlkyns hjúkrunarfræðinga í starfi og í íslensku samfélagi. Erindi Þórðar tekur aðallega á mismunandi ímyndum hjúkrunar og hvernig karlar í starfinu staðsetja sig út frá þeim og líta á hjúkrun út frá eigin forsendum. Þar takast á staðalmyndir hjúkrunarfræðinga í dægurmenningu okkar, í orðræðu samfélagsins og í ímyndunarsköpun hjúkrunarfræðinganna sjálfra.
Þórður Kristinsson lauk meistaraprófi í mannfræði við Háskóla Íslands árið 2003 og bar lokaritgerð hans heitið "Kynlegir kvistir. Karlar í hjúkrun." Þórður er stundakennari við Háskóla Íslands og vinnur að frekari rannsóknum á körlum og hjúkrun.

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?