Monday, October 11, 2004
Skákpartý
Um helgina rifjaði ég upp gamla takta síðan úr skákklúbbi Fossvogsskóla veturinn 1986-87, þar sem ég vann titilinn "Hr. skák" tvo mánuði í röð. Hrólfur bauð í skákpartý (en boðskortið til mín týndist víst í póstinum - eða að hann þorfði ekki að bjóða mér af ótta við skákorðspor mitt á spjallþráðunum á www.chess.net. Eníhú, ég mætti, og ég sá skelfingarsvip á honum þegar hann sá mig í dyrunum - hann gerði sér augljóslega grein fyrir að allar skákir hans við mig væru tapaðar þetta kvöldið. En hann reyndi að play itt kúl - "Uuuu Blessaður Bragi. Uuuu við erum einmitt að fara að tefla. Óvænt ánægja að þú skyldir renna við". Ég snaraði mér inn og sá þar Andra, Óla og Gumma að reyna að gera við SONY skákklukkuna hans Hrólfs. Ég hló hátt að þeim "HAHAHAHA" og benti þeim á að ég tefldi nú bara samkvæmt ákveðnum standardi og notaði bara hinar Rússnesku SJOSJOKAOVITS skáklukkurnar og ekkert annað. Sem betur fer er ég alltaf með eina slíka með mér úti í bíl, og ég náði bara í hana. Hrólfur bauð mér bjór, svona til að reyna að hafa áhrif á taflmennsku mína, en það hafði að sjálfsögðu engin áhrif. Ég kveikti mér bara í Krobaski sígarettunum sem ég reyki alltaf þegar ég tefli og fór í vínskápinn hjá pabba hans og náði mér skásta viskíið sem ég fann. Gummi sagði "Hey - eigum við ekki að taka þrískák" svona til að reyna að rugla mig, en ég vildi það að sjálfsögðu ekki. Síðan tók ég skákir við þá alla og rústaði þeim og fór hlæjandi heim. Þeir sátu víst eftir og reyndu að kenna hvortum öðrum mannganginn til kl. 3 um nóttina.
Les : ég tók tvær skákir, tapaði annari og féll á tíma í þeirri næstu. En þið skuluð bara passa ykkur næst!