Monday, November 22, 2004
Það stefnir í að næsta skákpartí verði allsvakalegt. Hrólfur og Gummi farnir að skjóta á hvorn annann á alnetinu, Andri mun eflaust liggja í skákbókunum til að hefna ófaranna, og Óli uuu... er alveg brjálaður. Og ég, hah, þið skuluð sko bara passa ykkur. Ron Artest er bara smákettlingur miðað við mig.