Tuesday, December 21, 2004

Ferð mín á MÚM tónleika

Ég fór á MÚM tónleika í Óperunni í gærkvöldi með Jonna bróður. Með MÚM komu fram Stórsveit Sigríðar Jónsdóttur og SlowBlow. Þar sem ég veit að þetta er artí-fartí tónlist með hipp-og-kúl aðdáendum, þurfti ég að mæta í ákveðnum stíl. Ég fór úr nýju úlpunni sem ég keyptí í Hagkaup í síðustu viku, fór úr "venjulegu" peysunni og úr gönguskónum. Í staðinn fór ég í létta sumarjakkann, brúnu rúskinnsskóna mína og gamla hip peysu af pabba til að falla í hópinn. Ég var líka að hugsa um að klippa hárið á mér allt skakkt og safna alskeggi, en ég hafði bara ekki tíma til þess.

Síðan mætti ég í andyrið á miðasölunni. Það voru ekki mjög margir komnir, svo að ég beið aðeins lengur. Þegar að andyrið var orðið smekkfullt af hippogkúl týpum, fór ég í miðasöluna og sagði eins hátt og ég gat "ÉG ER Á GESTALISTA" og allir horfðu á mig fullir aðdáunar. (OK þetta var kannski ekki alveg svona). Fólkið var í artífartí stíl, amk enginn í Burberrís munstri...

Þegar tónleikarnir byrjuðu kom tónlistarfólkið á sviðið eitt af öðru. Strákarnir voru í Spútnik stíl og stelpurnar í kjólum úr Kolaportinu, fyrir utan eina, sem var í svona kántrí kjól. Öll voru þau mjög grönn enda á Hip fólk að vera með innan við 5% líkamsfitu skv. The Hipsters Handbook.

Í stuttu máli, þetta var hipp og kúl og allir artífartí; mjög gaman


Comments:
Þú gleymir alveg að tala um tónlistina, Hr. ArtíFartí. Hvernig var hún? Hún hefur kannski verið algjört aukaatriði í þessu social experimenti hjá þér.
 
Ha - tónlistin? Jújú, hún var fín. Reyndar þegar fyrsta lagið með MÚM byrjaði hélt ég að þau væru að stilla græjurnar. Þetta var allt svona minimalískt electro low-fi þar sem spilað var á sög, potthlemma og fleiri skrítin hljóðfæri...
 
hehehe
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?