Tuesday, January 25, 2005

Jæja snillingar, þorið þið að mæta?

"Fjöltefli í minningu skákunnandans Daníels Willards Fiskes

Í tilefni af 100 ára ártíð Íslandsvinarins Daniels Willards Fiskes og sýningu um hann í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni er gestum safnsins boðið til fjölteflis í fyrirlestrarsal safnsins miðvikudaginn 26. janúar kl. 13. Á undan mun Kristín Bragadóttir hafa nokkur aðfararorð um ævi hans og störf og hinn geysilega áhuga sem hann hafði á öllu því sem kom Íslandi við.

Helgi Ólafsson stórmeistari teflir við gesti. Þrenn verðlaun verða veitt. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig hjá upplýsingadeild safnsins eða á netföngin: emilias@bok.hi.is"

Hér í Bókhlöðunni er geymt merkilegt skákritasafn sem W. Fiske átti. Nefni það bara svona til gamans...


Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?