Monday, January 31, 2005



Mmmmm.... pizza

Ég ákvað að vera flottur á því um helgina og panta pizzu! Já, góðan daginn. Bara verið að flippa út! Ég ákvað þó að vera nú ekki að fara yfir um og panta einhver megaflottheit eins og Dominos eða Pizzahut, heldur pantað bara el cheepo pizzu hjá Pizzahöllinni. Það er tilboð hjá þeim, 16" m. 4 áleggjum á 1100 kr. Það er ekki mikið. Svo ég ákvað að skella mér á það. Mætti á staðinn og af 11 ára reynslu minni af því að vera með grænmetisætu, kíkti ég í kassann til að athuga hvort áleggin væru ekki rétt. Viti menn! Nautahakk yfir Helgu helming! Skemmtilegt. Strákurinn (ca. 16 ára) sem var að afgreiða kallaði á yfirmann sinn (ca. 17 ára) sem kíkti á þetta, sagði "Oooohh" og "djöfulsins", og síðan fóru þeir inn fyrir til að gera nýja pizzu. Ég beið í 10 mín og þá var pizzan tilbúin. Þegar ég var að fara kom einhvern hnakki inn með pizzukassa þar sem voru 2 sneiðar og sagði hátt og snjallt "Það er hár á pizzunni minni". Ekki það sem maður vill heyra nokkrum mínútum áður en maður ætlar að gæða sér á sömu vöru frá sama stað! En hey - pizzan mín var fín.

Comments:
Sjiii....
En hnakkasvipurinn á þér er góður
 
Já, takk fyrir það. Þetta er nýtt sport sem ég er að reyna að innleiða á Íslandi með Einari Bárðasyni. Blanda af paintball og pizzuáti: "Pizzball". Getur ekki klikkað! Chi-ching!
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?