Tuesday, March 08, 2005
Já, ég vildi bara updeita ykkur um mitt celebrity líf. Eins og þið vitið þá er ég mjög busy maður og hef ekki alltaf haft tíma til að hitta ykkur. Tja, hvar á ég að byrja? Ok, ég hef skroppið nokkrum sinnum til út síðustu daga og vikur, t.d. til Írlands, Austurríkis og Spánar. Viljið þið heyra meira? jájá ok. ok. Hvar á ég eiginlega að byrja? Ok ok. Vildi bara láta ykkur vita að meðan þið flestir voruð að skeina rassa, þá var ég á skíðum í Austurríki í viku og svo skrapp ég til Barcelona á Spáni með Moby sem ég rakst á í London. Þar gisti ég á 5 stjörnu hóteli og fór á fótboltaleik þar sem áttust við FC Barcelona og Espanyol, en það eru einmitt liðin í 1 og 3 sæti í spænsku deildinni. Svo á leiðinni heim, þá flaug ég með Magnúsi Scheving og stóra bróður hans Þórðar. Og í rútunni frá Keflavík, var ég samferða Ingvari leikara. Og svo á BSÍ sagði Ingvar við mig "Er hurðin læst?" og svo sagði hann "Tak't 'ann" og átti þá við leigubíl sem var að koma. Og svo í gær rakst ég á Gísla Martein í vinnunni og hann sagði við mig "Góðan dag" og ég sagði "Góðan daginn" við Gísla Martein. FUCK YEA BITCHESSSSS.