Monday, June 13, 2005
Episode III
Fór á Starwars Episode III með Þórði á laugardagskvöldið, í sól og blíðu. Það var nánast enginn í bíó, ætli við höfum ekki verið 10 í sal 2.
Tvær ályktanir eftir myndina:
1) George Lucas tekst hið ómögulega: láta Darth Vader líta illa út. Sbr. "Nooooooooooo". Þið skiljið þetta þegar (og ef) þið sjáið myndina.
2) Christian Hayden er verri leikari en Mark Hamill
Eftir myndina fórum við á Sólon og fengum okkur bjór. Veðrið var ge´eikt, eins og sagt er, og allt stefndi í mikla bæjarstemningu.
Við fórum heim kl. 00:30.
Comments:
<< Home
Eins og Bragi sagði þá var myndin stórkostleg. Christian Hayden sýndi til að mynda fram á það að tölvuteiknaðir karakterar geta alveg verið trúverðulegri en "alvöru" leikarar. Síðan vaknar upp sú spurning hvort Stawos eppísód 3 sé ekki ádeila Lúkasar á Bush stjórnina. "only a sith deals in obsolutes".
Post a Comment
<< Home
