Tuesday, June 21, 2005

Supersize me


Í síðustu viku vaknaði löngunin í einn sveittan borgara. Fór á einn sveittasta staðinn í bænum, Kjúklingastaðinn í Suðurverinu, þar sem maður sér fituna svífa um loftið. Pantaði beikonborgara, stóran skammt af frönskum og stóran skammt af kokkteilsósu. Fékk þetta allt í poka to go. Fór heim og tók upp úr pokanum. Og þá kom uppgötvunin. Svo virðist sem að í Suðurveri séu aðrar stærðarreglur á kokkteilsósu en á öðrum stöðum. Yfirleitt er lítill skammtur af kokkteilsósu ca. 3 teskeiðar, miðlungs ca. 4 teskeiðar og stór ca. 5 teskeiðar. En ekki í Suðurveri. Onei. Þegar ég tók matinn úr pokanum fann ég HUGE kokkteilsósuskrímsli, örugglega 1/2 kíló í STÓRRI dós! Ég missti eiginlega matarlystina, en skellti í mig borgaranum og smakkaði aðeins á kokkteilsósunni. Þið eruð velkomnir í heimsókn á næstu vikum og fá kokkteilsósu hjá mér, ég geymi hana inn í ísskáp. Ég mun þó losa mig við hana fyrir mánaðamót.

Comments:
namminamm, ég skil ekki versvegna þú komst ekki með hluta af henni með þér í gær.
 
já - þið hafið enn nokkra daga til að koma og fá kokkteilsósu á brúsa til áfyllingar...
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?