Monday, July 11, 2005

Jæja, best að reyna við þetta eins og Bragi:

Kvikmyndagagrýni frá Þórði I

Voksne Mennesker
Dagur Kári Pétursson leikstj, aðalhlutverk: Jakob Cedergren, Nicolas Bro, Tilly Scott Pedersen. 109 min., Danmörk.

Dagur Kári er sennilega þekktastur fyrir hressilegu gamanmynd sína Nói Albínói þar sem ungur drengur lærir að lifa í sátt við hárleysi sitt í gegnum skondnar uppákomur í litlu þorpi á landsbyggðinni. Hér er Dagur Kári sestur í leikstjórastólinn hjá frændum okkar Dönum og sækir innblástur sinn í danskan kvikmyndaarf. Hún fjallar í stuttu máli um það að tapa ekki barninu innra með sér og hvernig allar manneskjur takast á við þá ábyrgð sem er lögð á herðar þeirra. Hún er á dönsku, er svart/hvít, án ofbeldis, nektar eða sprenginga og er samt hörku skemmtileg.

**** stjörnur af fimm mögulegum.

Comments:
já, gamanmyndin Nói Albinói var alveg hilarious!
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?