Tuesday, July 12, 2005



Tónleika gagnrýni Þórðar.

Anthony and the Johnsons
Mánudaginn 11. júlí. á Nasa. Hudson Wayne hituðu upp.

Hvað get ég sagt. Klárlega betri tónlistarmaður en klæðskiptingur.
Hudson Wayne flottir og tóku uppáhaldsslagarann Sexual Garden sem er á fyrstu smáskífunni þeirra sem ég lánaði einhverjum fyrir 2 eða 3 árum og vil endilega fá aftur. Anthony var glimmrandi skemmtilegur með gamanmál á milli laga og spann upp laga- og textabúta út frá þeim pælingum sem fóru vel í áhorfendur. Held barasta að ég hafi aldrei farið á tónleika á Íslandi þar sem hljómgæðin hafa verið svona góð. Hann tók 3 fín ábreiðulög og þar á meðal The Guests eftir L. Cohen sem hljómaði barasta mun betur í flutningnum þarna. Gæsahúðin var mest þegar hann tók You are my sister og My lady story.

**** og 1/2 stjarna af fimm mögulegum.

Comments:
en var "policeman in the street" ekki spilað?
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?