Thursday, August 18, 2005



Djammað með GusGus

Þar sem þið lifið mjög óspennandi lífi og þekkið engin celebs, vildi ég gefa ykkur smá innsýn inn í næturlíf Reykjavíkur og segja frá einu af djömmum mínum í sumar. Jebb, á meðan þið horfuðuð á Djúpu laugina eða eitthvað fór ég í partý í artí 50´s íbúð með kúl húsgögnum úr GÓÐA HIRÐINUM um daginn þar sem var svaka stemmning. Og ekki leið á löngu þangað til celebsin fóru að flykkjast að: kærasta íbúðareigandans er fyrrverandi kærasta Magga Lego í GUSGUS. Þarna var drukkið og hlustað á hip og kúl tónlist af IPOD og VÍNILPLÖTUM, og drukkið FRAMANDI áfengi. Síðan var farið niður í bæ, við fórum næstum því inn á SIRKUS og allt. Kom ekki heim fyrr en kl. 5! Ég mun örugglega endurtaka gott djamm með GUSGUS á næstunni. Ég skal kannski hringja í ykkur og biðja ykkur um að skutla mér í partý til þeirra næst.

Ég mun blogga um næsta djamm mitt með fræga fólkinu, þess verður örugglega ekki lengi að bíða.

Hvernig er það annars – eigum við ekki að fara að tefla bráðlega?

... Halló?

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?