Wednesday, August 03, 2005

Tónleikagagnrýni Þórðar II

Hér er stutt umfjöllun um fyrri dag Innipúkans sem fór fram laugardaginn 30. júlí. Við Þura nældum okkur í þetta fína borð vinstra megin við sviðið. Sáum Ampop gera sína hluti og hristuðum síðan höfuðið með Dr.Gunna sem tók Bless-lög og S/H draums lög í bland við nýtt. Hann tók ekkert af Abbabbabb þrátt fyrir allavegana einn lítinn strák í fremstu röð áhorfenda sem var með Heiðu kennda við Unun mömmu sinni. RASS var berstrípaðasta pönk sem hefur rekið á strendur Íslands síðan Rokk í Reykjavík var filmuð og jafnvel meira pönk en öll böndin þar samanlagt. Æðislega berstrípuð lög með beinskeyttum boðskap, slæmu rími og vondri ensku inn á milli. Bravó! Skylst að það sé ef til vill hægt að dobla þá til að spila í brullaupsveislum. Úlpa fönkaði upp geimið eins og Santana á djammi með Mars Volta en samt ekki. Allt að gerast hjá strákunum þar. Loxins loxins kom síðan að Cat Power sem ég var eiginlega barasta mættur til að sjá. Missti af fyrstu nótunum af því að ég var að hengja upp plaköt á karlaklósettinu (sjá lagardagsmoggann). Ég hef aldrei verið jafn meðvirkur á tónleikum áður. Sussaði á fólk og vonaði að Chan myndi ekki brotna niður. Mér fannst hún eitthvað svo brothætt og síðan að bera hana fram fyrir þessa fylleríssamkomu. Perlur fyrir svín eða krækiber í helvíti komu í hugann. Skammaðist mín fyrir að vera svona nervös fyrir hennar hönd og gerði mitt besta til a njóta. Hún tók frábært Wite Stripes Cover og síðan blandaði hún saman Blue Moon, Dream dream dream og einhverju 3. lagi. Var æðisleg þegar ég hætti að hafa áhyggjur. Reykjavík! heillaði alla sem ekki létu sig hverfa eftir CP. Er soldið skotinn í þeim ennþá. Þórir átti ekki góðan dag. Ég varð aftur meðvirkur og klappaði extra mikið til að reyna að bæta upp það að enginn virtist vera að hlusta á grey manninn. Jonathan Richmond var skondinn og náði upp stemmara þrátt fyrir allt. Hann fékk prik í kladann. Mugison mætti með frúna og var í aðeins of miklu þjóðhátíðarskapi. Byrjaði á Fjöllin hafa vakað í 1000 ár og reif upp fyllerísstemninguna sem var í gangi. Var síðan finn en datt í smá tölvuvesen sem ég held að hafi verið aðallega vegna hans eigin ölvunar. Síðan tók hann langt og frekar leiðinlegt egó trip og tapaði mér. Hann náði síðan að vinna sér inn prik aftur með fínum enda. Þá tók hann Árna fingralanga á þetta í lokin og fékk alla til að syngja ef ég væri orðin lítil fluga. Sætt. Apparat byrjaði og ég nennti þessu ekki lengur.

Allt í allt *** stjörnur af fimm mögulegum.

Comments:
Bravó! Almennilegt blogg!
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?