Monday, September 26, 2005

Baugsmálið
Ég er nokkuð sammála Dr. Gunna þegar hann fjallar um Baugsmálið:
"...Maður er nú alveg að vera spinnegal í þessu og best held ég að slökkva bara á öllu og lesa um þessa steypu í Öldinni okkar eftir 20 ár. Annars er Jónína náttúrlega sexí kjelling (miðað við aldur og fyrri störf) og ekkert skrýtið að hún sé að gera allt vitlaust. Hún kom í útvarpsþáttinn Zombie á sínum tíma og talaði um alla spillinguna í samfélaginu og bla bla bla og sagðist vera með bók um þetta allt saman (sem kom nú aldrei út og hefur ekki verið nefnd einu orði í þessu rugli öllu saman núna), en sama hvað hún talaði mikið þá skildi ég aldrei hvað hún átti nákvæmlega við. Og sama hvað Jón Gerald talar mikið um það sem Baugur á að hafa gert sér þá hef ég ekki alveg skilið það ennþá hvað er í gangi hjá honum, um hvað málið snýst. Bara eitthvað rugl með einhverja snekkju og ég veit ekki hvað og hvað."