Thursday, October 20, 2005

Er kominn 1. apríl?

RÚV: Leitað að arftaka Guttorms heitins

Nýr þáttur hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld. Þátturinn verður í anda svonefnds raunveruleikasjónvarps, tekinn upp í fjósum og sýndur næstu 4vikurnar. Sjónvarpsmenn fara undir forystu Gísla Einarssonar fréttamanns í leit að nauti til að taka við af hinum fallna öðlingi Guttormi í Húsdýragarðinum.

Þeir tuddar sem keppa um að taka við af Guttormi verða gaumgæfðir af sérfróðum mönnum; nokkur naut á hverjum bæ verða vegin og metin og þau sem komast í úrslitakeppni fá heyvisk. Það naut sem loks verður valið, fær síðasta hálmstráið. Þrjár kýr búa í Húsdýragarðinum í Reykjavík. Þær fá að koma nokkuð að vali hins nýja þarfanauts. Gísli telur að nautalíf sé sjaldnast dans á rósum en svo kunni þó að vera í Húsdýragarðinum. Þar verður tekið á móti sigurvegaranum með kostum og kynjum.

Ef þið trúið mér ekki - tékkið þá hérna...

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?