Monday, November 28, 2005



Afmæli
Í tilefni af tveggja ára afmæli bloggsíðunnar "Gilliforpresident" er ykkur boðið í afmælisveislu í veislusal Hótel 101. Þar mun DJ Margeir sjá um tónlistina ásamt Prezident Bongó. GusGus mun spila lög og strákarnir í Sigurrós spila lög af disknum [~]. Veitingar verða í boði ítalska matreiðslumannsins Javier Escobar sem sér um matinn á SALT. Loks verður tískusýning frá Eskimo models og Jón Gnarr fer með gamanmál. Bragi Þorgrímur Ólafsson, ritstjóri síðunnar, mun lesa úr ljóðabók sinni "Ég er artí - ekki þið" og veita áritanir. SJÓN og Hallgrímur Helgason lesa einnig úr nýútkomnum bókum. Að lokum verður tekið spil í Popppunkti þar sem Dr. Gunni og Felix Bergsson stjórna. Hægt er að nálgast boðsmiða í Tízkuvöruverzluninni Smart, Grímsbæ.

Comments:
Vúhúúúúúú! Hvenær er annars næsta spilakvöld og hjá hverjum verður það?
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?