Tuesday, November 01, 2005

Typical
Dæmigert að loksins þegar maður hefur tilefni, tíma og aðstæður til að lyfta sér upp, er þetta það eina sem er í boði. Fór með Helgu út að borða á laugardagskvöldið á Indian Mango á Frakkarstíg. Eins og venjulega hittum við celebs, að þessu sinni Benna Hemm Hemm. Að því loknu datt okkur í hug að kanna hvort það væri ekki eitthvað skemmtilegt að gerast í bænum, tónleikar eða eitthvað. Nei. Aðeins hljómsveitin hér til hliðar. Jæja, ok, ákváðum þá að skella okkur í bíó, Flightplan kl. 22:45. Mættum í Háskólabíó stuttu fyrir sýningu. Þá var búið að hengja upp tilkynningu "Flightplan kl. 22:45 fellur niður vegna bilunar"! Jæja, náðum þá í vídjóspólu í staðinn. Huggulegt kvöld þrátt fyrir þetta...
