Wednesday, May 03, 2006
Þýsk grín!
Á ekki að mæta á þetta Gummi?
Þýski grínistinn Manuel Andrack hitar upp fyrir HM í knattspyrnu
Laugardaginn 6. maí kl. 16.15 verður þýski grínistinn og rithöfundurinn Manuel Andrack gestur átaksverkefnisins Þýskubíllinn í sal 101 í Odda, Háskóla Íslands.
Andrack er þekktastur sem aðstoðarmaður og brandarasmiður eins frægasta sjónvarpsgrínista Þýskalands, Haralds Schmidts sem er n.k. Jay Leno Þjóðverja. Í tilefni af heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu, sem hefst í Þýskalandi eftir fáeinar vikur, les Andrack úr nýlegri bók sinni þar sem hann fjallar í léttum dúr um misánægjulega reynslu sína sem áhangandi úrvalsdeildarliðsins 1. FC Köln. Að auki sýnir hann litskyggnur sem varpa mjög nýstárlegu ljósi á hina þýsku "fótboltasál". Upplesturinn verður á þýsku.
Auk þess að vera grínisti og fótboltafræðingur er Andrack sennilega þekktasti hversdagsgöngugarpur Þýskalands og kom nýlega út eftir hann bók um gönguferðir hans um þýsku Miðfjöllin. Frá þessu áhugamáli sínu mun Andrack geta sagt í óformlegu spjalli eftir erindið en þá verður boðið upp á léttar veitingar sem verða með sérstöku fótboltaívafi.
Þýskubíllinn er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Félags þýzkukennara, Þýska sendiráðsins á Íslandi og Robert Bosch-stofnunarinnar í Stuttgart sem felst í því að aka þrívegis umhverfis landið á Porsche-jeppa til að fræða íslenska skólaæsku um heimsmeistaramótið í knattspyrnu og kenna henni dálitla þýsku í leiðinni.