Thursday, July 06, 2006

Enskukunnátta

Það væri ekki verra að hafa utanríkisráðherra sem kynni eitthvað í ensku:

"Vangaveltur hafa verið uppi um hvort utanríkisráðherrann nýi búi yfir nægilega góðri enskukunnáttu til að sinna erlendum samskiptum af fullum krafti. Heimildarmaður Orðsins á götunni segir að ráðherrafundurinn á Höfn hafi frekar orðið til að auka þær áhyggjur en hitt. Allt sem Valgerður sagði mun hún, skv. heimildarmanninum, hafa lesið af blaði á "bjagaðri ensku", nema hvað á einum fundi var borin upp spurning, sem greinilega hafi verið búið að láta vita af fyrirfram, en utanríkisráðherrann fór þá blaðavillt og las upp ítarlegt svar við allt annarri spurningu sem tengdist hinni ekki neitt.

Ráðherrann hafði sem betur fer færa embættismenn sér til halds og trausts en Grétar Már Sigurðsson sendiherra mun hafa setið við hliðina á Valgerði allan tímann. Ef eitthvað óvænt kom upp þá skrifaði hann jafn harðan svar á blað og rétti henni."

Orðið á götunni

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?