Monday, November 20, 2006

Föstudagsdjamm

Síðasta föstudag fór ég á Sykurmolatónleikana. Yfirleitt nenni ég ekki á tónleika nema ég sé á gestalista, svo að ég hringdi í Eika bróður sem reddaði því. Ég talaði svo við Gumma, sem skellti sér með.

Tónleikarnir voru fínir – Múm og Rass hituðu upp og svo byrjuðu Sykurmolarnir. Við Gummi vorum á ágætum stað á gólfinu, við vildum ekki vera með FL-group plebbunum í stúkunni. Við hittum eitthvað fólk sem var með mér í Réttó/MS á gólfinu. Eftir tónleikana var svo VIP eftirápartí. Ég nennti varla að fara, en Gummi vildi fá bjór, svo við skelltum okkur þangað. Þar var opinn bar og ýmsar ókeypis veitingar. Tónlistaratriði og margt fleira kúl að gerast.

Þeir sem voru í partíinu:
1. Ragnhildur Steinunn (Kastljósið)
2. Eyrún (ex-Kastljósið)
3. Þórhallur (Kastljósið)
4. Guðjón í OZ
5. Ingibjörg Stefánsd.
6. Björk
7. Danni í Maus
8. MÚM
9. Eiki (MÚM)
10. Ágústa Eva Erlendsdóttir (Silvía Nótt)
11. Bragi Þorgrímur Ólafsson (Stjörnusagnfæðingur)
12. Guðmundur Páll Magnússon (Stjörnufjarskiptaverkfræðingur)
13. Gísli Marteinn
14. Baltasar Kormákur
15. Hannes Smárason (FL group)
16. Margeir plötusnúður
17. Reynir Lyngdal leikstjóri
18. Arnar Eggert Thoroddsen
19. Bibbi Curver
20-27. Nokkrir leikarar
28-50. Alls konar kúl fólk

Þeir sem voru ekki í partíinu:
1. Kalli Bjarna idolstjarna
2. Þórður

Þeir sem vilja koma í ámóta hipp og kúl partí geta mætt hingað annað kvöld.

Comments:
Ég nenni eiginlega ekki að fara á svona fyrirlestra nema að ég sé á gestalista
 
hehe!
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?