Tuesday, March 27, 2007

Úr samkvæmislífinu
Á laugardagskvöldið var farið á veitingastaðinn Indian Mango. Þar hittumst við Helga, Óli, Gummi og Silla og fengjum fínan mat en miðlungs þjónustu. Að loknu borðhaldi var farið á OLIVER þar sem 97% gestanna voru kvenkyns og af þeim voru 87% eins útlítandi en 100% þeirra voru að leita að JUDE LAW og félögum sem létu þó ekki sjá sig. Eftir stutt stopp þar var haldið á Ölstofuna sem er hámóðins meðal blaðamanna og fleiri. Efti nokkur glös þar fórum við Gummi á NASA. Þar var afskaplega löng röð, en við vorum að sjálfsögðu með miða, og gengum því beint inn á staðinn. Stuðið byrjaði samstundis, Margeir plötusnúður fór á kostum. Þá var komið að upphitunarbandi sem ég man ekki hvað heitir og þeir tæmdu nánast dansgólfið. Þá tók Margeir aftur við og fjörið hélt áfram. GUSGUS byrjaði svo að spila kl. 2:30, eins og alvöru djammbandi sæmir. Bandið spilaði til kl. 4 – þá var haldið í leit að leigubíl, og sem betur fer var nóg af þeim. Lærdómur kvöldsins: Mikið afskaplega er kröftugt hljóðkerfi á NASA.