Wednesday, July 11, 2007

Ruby Tuesday 3/5
Brilliant sól og ágætis borgari á viðráðanlegu hádegisverðartilboði. Það er hægt að sitja úti fyrir utan staðinn á góðviðrisdögum og það er það mikil traffík að manni líður eins og í útlöndum með útlanda magn af sól og mengun. Þjónustan var ágæt fyrir utan smá misskilning eins og að það vantaði hnífapör og krydd þannig að við urðum að redda því sjálfr. Þá var örlítill hvítruslbragur af glösunum sem kókið var borið fram í - svona alvöru bjórkrúsir, nema úr plasti.
Einhverntíma er síðan nauðsynlegt að prófa staðinn aftur og dást að inréttingunum sem mér skilst að séu undir áhrifum frá amerískri smáborgarmenninga c. 1950. Spennó.
Labels: veitingahúsagagnrýni