Friday, March 07, 2008

Uppgjör!
























Hey - félagar - það er komið að því. Ég veit ég get treyst á ykkur. Smellið á www.icelandair.is og bókið flug til Minneapolis þriðjudaginn 11. mars. Helga getur skutlað okkur á völlinn ef ég færi barnastólinn í skottið. Ég skal splæsa bjór á barnum og borga 1500 kall í flugmiðunum ykkar. Við þurfum nefnilega að settla málin við þennan mann, sem býr einhversstaðar í Minnesota held ég. Leggið andlitið hans á minnið, og helst bílinn hans líka - Af hverju? Jú, hann kallar sig DJ-Boogie, sem er að sjálfsögðu lögverndað nafn. Þessi óþokki hefur meira að segja gefið út geisladisk undir þessu nafni! Eins og hann viti ekki af öllum kassettunum sem ég hef tekið upp! Þetta er grófasti nafnastuldur síðan Dust brothers. Ég veit að Gísli er í framhaldsnámi í Minnesota og við fáum hann í hópinn. Ég skal hringja í hann og biðja hann um að sækja okkur á flugvöllinn í Minneapolis. Síðan leigjum við okkur flottan SUV - nú eða pallbíl og finnum kauða.

Takk,
DJ-Boogie

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?