Monday, May 05, 2008
Mikilvægi öryggisafrita
Hver kannast ekki við að hafa upplifað huggulega kvöldstund í góðra vina hópi þar sem horft er á kvikmyndaperlur samtímans eða skemmtilega sjónvarpsþætti? Stundum er hlegið dátt eða jafnvel felld tár. Oft eru verðmætar minningar tengdar þessum mikilvægu samverustundum og því ber að halda þeim til haga. Stundirnar mega ekki glatast og því er nauðsynlegt að taka öryggisafrit af þessum kvikmyndaperlum og geyma á öruggum stað, helst í öðrum bæjarhluta til að koma í veg fyrir missi t.d. af völdum eldsvoða. Maður veit aldrei hvenær óhöppin eiga sér stað.
Ekki týna minningunum. Fáðu vin í heimsókn og biddu hann um að taka öryggisafrit af kvikmyndum þínum og geyma heima hjá sér, á öruggum stað.
Verum örugg – tökum afrit!
Ég býðst til þess að koma heim til ykkar með harðan disk og taka öryggisafrit af kvikmyndum ykkar og sjónvarpsþáttum gegn vægu gjaldi.