Tuesday, July 08, 2008

Eitthvað höfum við Bragi upplifað Indy 4 myndina á mismunandi máta. Hér er mín gagnrýni

Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull ***

Hjartnæm mynd þar sem flókið fjölskyldumynstur aðalpersónanna er aðal drifkraftur framvindunnar sem kemur skemmtilega á óvart. Harrison Ford leikur háskólaprófessor sem má muna fífil sinn fegri sem fær uppí hendurnar tækifæri til þess að kynnast unglingssyni sínum og reynir að forðast þá fjarlægð og tregðu sem einkenndi samband prófessorsins við sinn eigin föður. Inn í söguna fléttast endurvakin kynni af æskuástini, tryggð gamalla vina og vandasamt samband prófessorsins við stjúpföður sonar síns. Eitt eftirminnilegasta atriði myndarinnar er einmitt þegar prófessorinn sér glitta í þá manneskju sem leynist undir alzheimer stjúpföðursins.

Það sem er helsti ljóður myndarinnar eru allir þeir aukakarakterar sem eru ynntir til sögunnar sem eiga þó allir sinn þátt í að leysa þær krísur sem háskólaprófessorinn þarf að kljást við í ljósi breyttra fjölskyldnuaðstæðna. Lausnin á fjölskylduvanda háskólaprófessorsins kemur síðan skemmtilega á óvart í enda myndarinnar.

Niðurstaða: Ef söguþráðurinn hefði verið annar væri þetta örugglega ágætis mynd.

Besta frammistaða: hundruðir nafnlausra 'innfæddra' sem virðast ekki hafa neitt betra að gera en að bíða í leyni í nokkur hundruð ár eftir að Indiana Jones labbi framhjá.
Besta atriðið: Ísskápurinn.

Labels:


Comments:
Var þetta ekki Regarding Henry?
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?