Monday, July 07, 2008
Vegna fjölda áskoranna:
Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull **
Steven Spielberg og George Lucas ákváðu að taka upp þráðinn frá 1989 og bæta við fjórðu myndinni í Indiana Jones trílogíuna (!) og kalla til Harrison Ford (74), konuna sem var kærastan hans í fyrstu myndinni (73) og einhvern ungan dreng (17) sem fer í taugarnar á fólki strax frá fyrstu mínútu.
Í upphafi myndarinnar er komið inn á kaldastríðsandrúmsloftið í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum bæði hvað varðar hræðsluna við kjarnorkuárásir og kommúnistagrýluna. Gaman hefði verið að sjá meira af þessu. Einnig var áhugavert að sjá stóru vörugeymsluna sem kom við sögu í fyrstu myndinni og glitta í örkina. Síðan þarf Jones að hitta gamlan vin sem er í vandræðum og hittir þá þennan leiðinlega dreng sem er sonur hans og hitta svo kærustuna úr fyrstu myndinni sem er barnsmóðir Jones og mamma leiðinlega drengsins. Loks halda þeir til s-Ameríku til að finna kristalshauskúpu sem var stolið af geimveru fyrir löngu. Rússarnir elta þau og þau detta niður fossa. Og sleppa frá maurum. Síðan finna þau geimveruhofið og setja hauskúpuna á réttan stað. Þá vill kommúnistakonan fá að vita allt og springur úr þekkingu því hún horfir í augun á hauskúpunni. Síðan flýgur geimflaugin í burtu og fjallið hrynur.
Niðurstaða: Ef söguþráðurinn hefði verið annar væri þetta örugglega ágætis mynd.
Versta frammistaða: Óþolandi drengurinn. Macaulay Culkin væri betri í þessu hlutverki.
Versta atriðið: Þegar kirkjuhurðin opnast og hattur Jones fýkur til óþolandi drengsins.
Önnur betri ævintýramynd sem gerist í s-Ameríku: ANACONDA motherfuckers!!! Með Ice Cube, Jennifer Lopes, Eric Stoltz, Owen Wilson og Jon Voight!!! En aðallega Ice Cube.