Wednesday, August 27, 2008

Clone Wars ** (með Arngrími)
Þó að söguþráðurinn sé alveg skelfilegur er þessi mynd ekki eins slæm eins og ég hélt. Sagan gengur út á þetta: Búið er að ræna syni JABBA (!), sem er einhverskonar ungabarn. Anakin og Obi-Wan fara að leita að hönum ásamt ungri stúlku. Inn í söguþráðinn fléttast frændi JABBA, sem er einhverskonar næturklúbbaeigandi í miðbæ Coruscant – svona Geiri á Goldfinger lookalike. Slæmt? Já – en 90% af myndinni eru bardagar svo maður pælir ekki mikið í arfaslökum söguþræði. Síðan voru nýju myndirnar líka svo virkilega slæmar - illa leiknar og of áberandi tölvugrafík – að þessi er bara hreint alveg ágæt í samanburði við þær! Maður þarf amk ekki að þurfa að horfa á Hayden Christiansen ofleika, Nataline Portman að kveina og Liam Neeson að tala eitthvað út í loftið í greenscreen við Jar Jar Binks!


Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?