Sunday, August 03, 2008

Íslenskir pizzustaðir 1992-1999

Tími er kominn á sögulegt yfirlit:

Topp sex:

1. Pizzahúsið. Hver man ekki eftir Pizzahúsinu? Újee. Man ennþá eftir því hvað pepperóníið var gott hjá þeim. Væri alveg til í eina 18" núna. Hvar borðað: aðallega heima hjá Sibba, Þórði og Hjalta.

2. Jón Bakan. Djúsí pizzubotn og virkilega góð pizzusósa. Hvar borðað: Heima hjá Nonna.

3. Pizza67. Hey - ef Gilla fannst Pizza67 góð, þá tekur maður mark á því. Hvar borðað: Í kjallaranum hjá Hjalta, 5 kvöld í viku, helst yfir Doom, Risk eða X-Files.

4. Dominos. Var ferskt 1993 og gott þá - ekki í dag. Hvar borðað: Heima í Hellulandi.

5. Pizza Hut. Langdýrustu pizzurnar og greasy eftir því. Hvar borðað: man ekki.

6. Hrói höttur. Æjá, alveg ágætt... Hvar borðað: hér og þar.

Sæmilegar pizzur (post 1999):

1. Pizzahöllin: allt er hey í harðindum

2. Wilsons: Æ, nei - eiginlega ekki gott.

3. Little Caesars: Maður gat komið við og keypt þær tilbúnar á staðnum - en það þýddi líka að þær voru búnar að standa tilbúnar allan daginn.

Bíómynd sem maður varð einfaldlega að borða pizzu yfir: Do the right thing. Reyndu bara að horfa á hana án þess að panta pizzu. Ójá, reyndu bara...

Best í dag: Eldsmiðjan - dýrar og afgreiðslufólk með attítjúd, en ó hvað þær eru góðar...

Pizzustaður sem maður hefði átt á prófa: Pizza Mussolini: já, það var til staður með þessu nafni hér í Reykjavík.

Comments:
Góð uppryfjun, en ég saknaði Pizza Elvis - ekkert jafnast á við að hafa kónginn uppí sér
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?