Monday, October 06, 2008

Nýr forseti Íslands

Tími er kominn á að fá nýjan forseta Íslands. Hér eru nokkrar hugmyndir:

1) Hemmi Gunn. Hemmi á baki glæstan íþróttaferil og líka sem gríðarvinsæll fjölmiðlamaður og hefur líka sungið inna á barnaplötur og unnið með Ladda. Ég meina – hverjum er illa við Hemma Gunn? Þjóðin kemst í gott skap við að hafa hann sem forseta.

2) Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson. Felix er góði gæjinn. Hann talar alltaf fyrir góðu hetjurnar í teiknimyndunum, hefur verið í vinsælli hljómsveit og í ýmsum fjölmiðlum. Síðan er hann gay, sem er móðins í dag. Ef hann yrði forseti, þá fengjum við 2 fyrir 1, en sambýlismaður hans er prófessor í stjórnmálafræði og vel sjóaður í Evrópusambandsmálum. Hann er svona alvörugefnari týpa á meðan Felix er svona „góði og hressi“ gæjinn.

3) Dorrit Músajeff. Flott og pen, ávallt svona barnslega glöð og vel networkuð um allan heim.

4) Ásdís Rán. Er að sigra Ungverjaland og næst er það Ísland og allur heimurinn.

Comments: Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?